Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 04. ágúst 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid ætlar að lána Kubo til Sociedad eða Mallorca
Takefusa Kubo er að fara á láni í fjórða sinn
Takefusa Kubo er að fara á láni í fjórða sinn
Mynd: EPA
Spænska félagið Real Madrid ætlar að lána japanska landsliðsmanninn Takefusa Kubo til Real Sociedad eða Real Mallorca fyrir komandi leiktíð.

Madrídingar keyptu Kubo frá FC Tokyo fyrir tveimur árum en þá var hann aðeins 18 ára gamall. Hann hafði nokkrum árum áður verið á mála hjá Barcelona þar sem hann æfði í La Masia-akademíunni.

Kubo er skærasta stjarna japanska landsliðsins og eru miklar væntingar gerðar til hans en hann á þó erfitt með að brjóta sér leið inn í aðallið Real Madrid.

Síðustu tvö tímabil hefur félagið lánað hann og hefur það gengið brösulega. Madrídingar vilja að Kubo fái spiltíma á Spáni og er hugsunin að lána hann til Real Sociedad eða Real Mallorca fyrir komandi leiktíð en þetta kemur fram í El Transistor.

Hann á enn eftir að spila leik fyrir aðallið Real Madrid og virðist vera að hann þurfi að bíða í einhvern tíma eftir því tækifæri.
Athugasemdir
banner
banner
banner