Arsenal er búið að lána Charlie Patino, 18 ára miðjumann, til Blackpool í Championship deildinni út tímabilið.
Patino skoraði eitt mark í tveimur bikarleikjum með Arsenal á síðustu leiktíð og á 16 leiki að baki fyrir yngri landslið Englendinga.
Arsenal er þá einnig búið að lána markvörðinn efnilega Arthur Okonkwo til Crewe Alexandra í ensku D-deildinni þar sem hann varði mark liðsins í sigri gegn Rochdale í fyrstu umferð nýs tímabils.
Okonkwo er tvítugur og á tíu leiki að baki fyrir yngri landslið Englands.
Marcelo Flores mun þá spila með Real Oviedo í spænsku B-deildinni eftir að hafa verið meðal bestu leikmanna varaliðs Arsenal á síðustu leiktíð.
Flores er 18 ára gamall og á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Mexíkó.
Það hafa margir aðrir leikmenn verið lánaðir frá Arsenal í sumar til liða um alla Evrópu.