Fotbolti.net
04.08.22 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Verið í hóp en mun ekki spila neitt á þessu tímabili

Pétur Theódór Árnason.

Pétur Theódór Árnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Arnar Daði Arnarsson

Sóknarmaðurinn Pétur Theódór Árnason hefur verið í leikmannahópi Breiðabliks í nokkrum Evrópuleikjum á þessu tímabili en hann mun samt ekkert spila á þessari leiktíð.
Pétur meiddist á æfingu með Breiðabliki í nóvember á síðasta ári, þar sem hann sleit krossband - í þriðja sinn á ferlinum.

Hann hefur verið að vinna í því að koma til baka en þarf tíma og mun líklega ekkert spila fyrr en á næsta ári.

„Hann mun ekki byrja að spila neitt fyrr en á næsta undirbúningstímabili," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, á fréttamannafundi í gær.

„Hann var í hóp en það var meira bara svo hann fengi að vera hluti af hópnum og einhvern veginn að vera með. Hann mun ekki spila neitt á þessu tímabili."

Það verður fróðlegt að sjá hvernig Pétur Theódór kemur inn í lið Blika á næstu leiktíð en hann raðaði inn mörkunum með Gróttu í næst efstu deild síðustu ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.