Þorsteinn Aron búinn að semja við Val - Klárar tímabilið á Selfossi

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Frá því var greint í útvarpsþættinum Fótbolta.net fyrir tæpum tveimur vikum að miðvörðurinn ungi, Þorsteinn Aron Antonsson hjá Selfossi, væri á leið í Vals.
Þorsteinn er samkvæmt heimildum Fótbolta.net búinn að skrifa undir samning við Val en mun klára tímabilið með Selfossi í Lengjudeildinni.
Þorsteinn, sem er nítján ára, er í stóru á Selfossi og hefur hann skorað tvö mörk í ellefu leikjum í sumar.
Hann var keyptur til Fulham frá Selfossi haustið 2020 en samningur hans við enska félagið er útrunninn og krækja Valsmenn í hann.
Þorsteinn er unglingalandsliðsmaður sem varð fyrir því óláni að meiðast í fyrsta leik U19 á Möltu í síðasta mánuði.