Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 04. október 2019 10:30
Elvar Geir Magnússon
„Lille hlær alla leið í bankann"
Nicolas Pepe.
Nicolas Pepe.
Mynd: Getty Images
Arsenal goðsögnin Martin Keown segir að Lille muni hlæja alla leið í bankann eftir að hafa selt Nicolas Pepe til Arsenal á 72 milljónir punda.

Keown segir að Arsenal hafi yfirboðið í Fílabeinsstrendinginn.

„Mun Pepe ná að festa sig í sessi hjá Arsenal? Þetta er rosaleg upphæð sem var borguð fyrir hann og Lille mun hlæja alla leið í bankann," segir Keown

„Kannski mun leikmaðurinn ná að snúa dæminu við en ég hef ekki séð það sem ég bjóst við að sjá frá honum."

„Ég var spenntur þegar hann kom, ég sá hann í frönsku deildinni og hann leit út fyrir að vera mjög góður leikmaður. Hann býr yfir flottri tækni en hefur ekki fundið sig."
Athugasemdir
banner