Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 04. nóvember 2020 20:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ferdinand reiður: Viljiði segja mér að einhver sé látinn taka ábyrgð
Mynd: Skjáskot
„Mörkin sem 'við' fáum á okkur," byrjar Rio Ferdinand Twitter-færslu sína. Ferdinand er fyrrum leikmaður Manchester United og er að vísa í hversu illa lið United leit út í báðum mörkum Istanbul Basaksehir í kvöld. Ferdinand birtir þá mynd sem sýnir Demba Ba langt fyrir aftan aftasta varnarmann United í fyrra marki Basaksehir í kvöld. Leikurinn endaði 2-1 fyrir tyrkneska félagið.

Ferdinand heldur áfram: „Viljiði vinsamlegast segja mér að einhver sé brjálaður í klefanum og að einhverjir séu látnir taka ábyrgð á þessu."

„(Hér að neðan má sjá) Hvernig leikmenn voru staðsettir þegar boltinn tapaðist í fyrsta markinu,"
skrifaði Ferdinand.


Athugasemdir
banner
banner
banner