Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 04. nóvember 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Reguilon: Tottenham bjó til golfbrautir fyrir Bale
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Sergio Reguilon, vinstri bakvörður Tottenham, hefur grínast með það að félagið hafi búið sérstaklega til golfbrautir á æfingasvæði sínu fyrir Gareth Bale.

Bale og Reguilon komu báðir til Tottenham frá Real Madrid í sumar.

Bale átti erfitt uppdráttar hjá Real Madrid á síðasta tímabili en hann fékk meðal annars gagnrýni fyrir að taka golf meira alvarlegra en fótbolta í Madrid.

Púttvöllur og nokkrar stuttar golfbrautir eru á æfingasvæði Tottenham en þær hafa þó verið þar síðan svæðið var byggt.

„Það sem kom mér mest á óvart er að þeir bjuggu til golfbrautir fyrir hann á æfingasvæðinu. Það eru bara litlar brautir en ég trúði þessu ekki," sagði Reguilon léttur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner