04.11.26 - 11:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guðmundsdætur framlengja við KR

Mynd: KR

Mynd: KR

Systurnar Katla og Kara, dætur Guðmundar Benediktssonar og Kristbjargar Ingadóttur, hafa framlengt samninga sína við KR.
Katla (2007) hefur samið út árið 2028 og Kara (2010) út árið 2029. Kara skoraði tólf mörk í Lengjudeildinni í sumar og Katla skoraði tíu.
Báðar eru þær uppaldar í KR og voru báðar mikilvægir hlekkir í sóknarleik liðsins á tímabilinu. KR endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar á liðnu tímabili og verður því í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Báðar voru þær valdar í lið ársins í Lengjudeildinni af þjálfurum deildarinnar og Kara var valin efnilegasti leikmaður deildarinnar.

„Þær hafa einnig leikið með yngri landsliðum Íslands og verður spennandi að fylgjast með þeim í Bestu deildinni á næsta tímabili. Það er mikið gleðiefni að halda þeim áfram í svart-hvítu næstu árin!" segir í tilkynningu KR.
Kara á að baki 16 leiki fyrir yngri landsliðin og hefur í þeim skorað níu mörk. Katla hefur spilað 15 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim sex mörk.
Gummi Ben sagði frá því í ChessAfterDark að hann vonaðist til þess að elsta systirin, Karen Guðmundsdóttir (2003), gæti snúið á völlinn og það mögulega á næsta tímabili.