04.11.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
Real Madrid búið að gera samkomulag við JJ Gabriel

Mynd: Instagram/jjnr10

Mynd: Instagram/jjnr10
Real Madrid hefur komist að munnlegu samkomulagi við hinn sextán ára gamla JJ Gabriel um samning.
Gabriel er í unglingastarfi Manchester United en Real Madrid hyggst ganga frá samningi við hann í janúar.
Þessi gríðarlega efnilegi leikmaður óskaði eftir því að yfirgefa United í september og hefur ekki æft með félaginu síðan.

TENGT EFNI
Baráttunni um JJ Gabriel virðist lokið
Sky Sports segir að Real Madrid hafi gert samkomulag við umboðsmenn leikmannsins. Bayern München, Barcelona og Paris Saint-Germain höfðu einnig áhuga á honum.
Heimild: Sky Sports