Fotbolti.net
04.12.20 - 22:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Spánn: Mallo og Aspas sáu um Athletic Bilbao

Spánn: Mallo og Aspas sáu um Athletic Bilbao
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Athletic 0 - 2 Celta</b>
0-1 Hugo Mallo ('61 )
0-2 Iago Aspas ('78 )
Hugo Mallo og Iago Aspas reyndust hetjur Celta frá Vigo þegar liðið sótti Athletic heim í Bilbao í kvöld.

Staðan var markalaus í leikhléi en á 61. mínútu kom Mallo gestunum yfir með skallamarki eftir flotta sókn.

Á 78. mínútu bætti Aspas við öðru marki gestanna þegar hann nýtti sér slæm mistök Unai Simon í marki Bilbao.

Simon ætlaði að kasta boltanum á hægri bakvörð liðsins en leikmaður Celta komst fyrir og kom boltanum á Aspas sem kláraði af stuttu færi.

Bæði lið eru með þrettán stig ásamt fjórum öðrum liðum. Athletic er efst liðanna sex í níunda sæti. Celta er neðst liðanna í fjórtánda sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.