Fotbolti.net
05.01.21 - 13:30
Enski boltinn

Stærsti leikur ársins í Evrópufótboltanum 17. janúar

Það verður hart barist á Anfield 12. janúar.

Það verður hart barist á Anfield 12. janúar.

Canon

Mynd: Getty Images

Erkifjendurnir Liverpool og Manchester United eru jöfn með 33 stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í augnablikinu. Manchester United á inni leik gegn Burnley í næstu viku.

Liverpool og Manchester United mætast á Anfield sunnudaginn 17. janúar í toppslag en þessi lið hafa ekki verið að berjast við hvort annað um enska titilinn síðan árið 2009.
„Ég held að þetta verði stærsti leikur ársins í Evrópufótboltanum," sagði Hlynur Valsson, lýsandi hjá Síminn Sport, í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolta.net í gær.

„Liverpool eru ósigraðir á Anfield í 66 leikjum eða hvað það er komið upp í núna. Það væri gulrót fyrir United að ná loksins sigri á þessum velli. Ef það er einhverntímann tækifæri til að vinna á Anfield þá er það núna þegar það eru engir áhorfendur. Þetta verður svakalegur leikur."

Gunnar Ormslev bætti við: „Það er synd að það verði engir áhorfendur því það hefði allt verið snælduvitlaus,"

Hér að neðan má hlusta á þátt dagsins en þar var rætt nánar um Arsenal. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

<b>Enski boltinn</b> - Manchester liðin í stuði

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.