Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 05. febrúar 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hrannar sleit hásin á æfingu með KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrannar Björn Steingrímsson varð fyrir því óláni að slíta hásin á æfingu með KA á mánudag.

Hann hafði legið undir feldi í vetur en hafði tekið ákvörðun um að taka slaginn með KA á komandi tímabili og var búinn æfa nokkrum sinnum með liðinu. Sökum meiðslanna verður líklega ekkert úr því að hann spili með liðinu á komandi tímabili.

Þetta eru önnur alvarlegu meiðslin á ferli Hrannars. Hann varð fyrir því óláni árið 2021 að slíta krossband og var í kjölfarið frá í u.þ.b. ár.

Hrannar er 33 ára bakvörður og er næstleikjahæsti leikmaður KA á eftir bróður sínum, Hallgrími Mar.

Hrannar kom í KA eftir tímabilið 2013 með uppeldisfélaginu Völsungi.

Óheppnin virðist vera að elta KA-menn þegar kemur að hásinameiðslum. Sænski markmaðurinn Jonathan Rasheed sleit hásin skömmu eftir komu sína til félagsins síðasta vetur og Jakob Snær Árnason sleit hásin um mitt síðasta sumar.
Slapp