Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. mars 2023 23:55
Brynjar Ingi Erluson
Rekinn af velli 40 sekúndum eftir að hann kom inn á
Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Moise Kean staldraði ekki lengi við á vellinum er Juventus tapaði fyrir Roma, 1-0, í Seríu A í kvöld.

Kean, sem hefur skorað fimm mörk í deildinni, kom inn á sem varamaður á 89. mínútu leiksins fyrir Juan Cuadrado en 40 sekúndum síðar fékk hann rauða spjaldið.

Gianluca Mancini var í baráttunni við Kean og eftir smá glímu fékk Kean nóg og sparkaði í Mancini sem féll í grasið með miklum tilþrifum.

Hægt er að sjá klippu af rauða spjaldinu hér fyrir neðan.

Sjáðu rauða spjaldið hér
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner