Breiðablik og Augnablik hafa stofnað nýtt félag sem ber nafnið Smári og mun spila í 4. deild þegar Íslandsmótið fer loks af stað.
Félagið átti upprunalega að heita Blix en nafninu var hafnað af sérstakri nefnd.
Smári mun leika í D-riðli 4. deildar ásamt Hvíta riddaranum, Árborg og KH meðal annars.
Þeir eru ansi margir Kópavogsbúarnir sem eru leiknir með fótbolta og því þurfti að stofna annað lið fyrir bæjarbúa.
Af Kópavogsfélögunum leika Breiðablik og HK í efstu deild á meðan Augnablik er í þriðju deild. Ýmir, Ísbjörninn og Vatnaliljur eru í fjórðu deild á meðan Örninn og Stál-Úlfur virðast ekki vera skráð til leiks á Íslandsmótið.
Til gamans má geta að annað knattspyrnufélag er til sem heitir Smári. Það er staðsett á Hlíðarenda.
Nýtt knattspyrnufélag á vegum Breiðabliks og Augnabliks sem þarf því miður að bíða aðeins lengur. Allt credit fer til Snillingsins @GKristjansson6 fyrir þetta meistaraverk. Íslensk lið þyrftu að heyra í honum til að fríska upp á logoið sitt. pic.twitter.com/64xdiVtuzT
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) April 4, 2020
Athugasemdir