Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. apríl 2021 19:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúmenía: Rúnar Már hjálpaði Cluj að vinna Dinamo
Á landsliðsæfingu í síðustu viku.
Á landsliðsæfingu í síðustu viku.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
CFR Cluj 1 - 0 Din. Búkarest
1-0 B. Omrani ('80)

CFR Cluj vann 1-0 heimasigur gegn Dinamo Búkarest í efstu deild í Rúmeníu.

Dinamo missti tvo leikmenn af velli með sitt annað gula spjald í fyrri hálfleik og léku liðsmenn Cluj tveimur fleiri frá 37. mínútu.

Á 66. mínútu kom Rúnar Már Sigurjónsson inn á sem varamaður og á 80. mínútu skoraði varamaðurinn Billel Omrani sigurmarkið.

Cluj er stigi á eftir FCSB í toppbaráttunni. Þetta var þriðja innkoma Rúnars inn í lið Cluj frá því hann kom frá Astana í vetrarglugganum.

FCSB lagði Cluj í síðustu umferð en gerði jafntefli gegn Craiova (3. sæti) um helgina.

Rúnar skoraði sitt annað landsliðsmark þegar hann skoraði gegn Liechtenstein í síðustu viku.
Athugasemdir
banner
banner