Fotbolti.net
05.05.19 - 22:39
Magnús Þór Jónsson

Jói Kalli: Í Skagaklefanum vildum við 3 stig

Auglýsing
Jói Kalli: Í Skagaklefanum vildum við 3 stig
Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Skagamenn komu grimmir til leiks &iacute; &Aacute;rb&aelig; kv&ouml;ld og n&aacute;&eth;u t&ouml;kum &aacute; leiknum en misstu &thorn;au eil&iacute;ti&eth; &iacute; seinni h&aacute;lfleik og uppskeran jafntefli, hver voru fyrstu vi&eth;br&ouml;g&eth; &thorn;j&aacute;lfarans eftir leik?<br />
<br />
<em>&quot;Vi&eth; byrjum fyrri h&aacute;lfleikinn af svakalega miklum krafti, vorum me&eth; yfirh&ouml;ndina og pressu&eth;um Fylkismennina h&aacute;tt &aacute; vellinum, &thorn;vingu&eth;um &thorn;&aacute; &iacute; langa bolta sem vi&eth; unnum yfirleitt og vorum &ouml;flugir &iacute; &thorn;v&iacute; sem vi&eth; &aelig;tlu&eth;um a&eth; gera &iacute; fyrri h&aacute;lfleiknum&quot;.</em>
Breyting varð svo á.



"Einhverra hluta vegna vorum við ekki alveg nógu samstíga í pressunni í seinni hálfleiknum, samt voru Fylkismennirnir ekkert að skapa sér mikið af færum að mínu mati.  Þeir svo fá þetta horn sem við erum virkilegir klaufar að skora þetta sjálfsmark.



Eftir það kom alveg góður kafli þar sem Fylkismennirnir voru með yfirhöndina í leiknum en við gáfumst ekki upp og héldum áfram."




Hafði sjálfsmarkið slæm áhrif á liðið, það kom upp úr litlu?



"Það er ekki nokkur spurning. Þá fá þeir tíma á boltanum sem við vitum að þeir eiga ekki að gera.  Helgi Valur, Óli Ingi og Hewson, þegar þeir fá tíma á boltanum þá eru þeir frábærir fótboltamenn.  Castillion er hörku striker og ef hann fær svona færi þá náttúrulega skorar hann.



Mér fannst þetta vera rangstaða, mér sýndist hann mjög innarlega þegar hann fékk boltann."




Viktor Jónsson lá óvígur á vellinum í leikslok og lengi eftir hann. Jói var ekki sáttur við verklag dómara leiksins þá.



"Viktor sýnir mikið hugrekki að skalla boltann frá í þvögunni í teignum og er skallaður í höfuðið. Ég hélt að það ætti að stoppa leikinn þegar svoleiðis er en það er ekki gert, fyrir mér var þetta klár aukaspyrna.  Viktor er núna að láta kíkja á áverkana."



Nánar er rætt við Jóhannes í viðtalinu sem fylgir.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.