Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   mið 05. maí 2021 19:53
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi Max-deild kvenna: Þróttur jafnaði Tindastól undir lokin
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tindastóll 1 - 1 Þróttur R.
1-0 Hugrún Pálsdóttir ('36)
1-1 Katherine Cousins ('90)

Tindastóll tók á móti Þrótti R. í fyrstu umferð nýs tímabils í Pepsi Max-deild kvenna.

Gestirnir úr Laugardalnum voru betri í fyrri hálfleik en nýliðarnir tóku forystuna á 36. mínútu þegar Hugrún Pálsdóttir skoraði eftir hornspyrnu.

Katie Cousins átti flottan leik fyrir Þrótt og komst nokkrum sinnum nálægt því að skora en áfram leiddu Stólarnir. Þeir leiddu allt þar til undir lokin þegar Katie fiskaði aukaspyrnu á hættulegum stað og skoraði sjálf beint úr spyrnunni.

Lokatölur urðu 1-1 og fín byrjun hjá Tindastóli í efstu deild.

Sjáðu textalýsinguna
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner