Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. maí 2022 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spáin fyrir 2. deild: Njarðvík og ÍR fara upp
Mynd: Fótbolti.net
2. deild karla hefst á morgun: Höttur/Huginn og Ægir komust upp úr 3. deildinni í fyrra og Þróttur R. og Víkingur Ó. féllu úr Lengjudeildinni.

„Deildin verður fárveik, hún verður svo jöfn," sagði Gylfi Tryggvason annar af þáttarstjórnendum. Hann og Sverrir Mar Smárason fór yfir málin í Ástríðunni og spáðu í spilin.

Spáin var byggð á undirbúningstímabilinu og félagaskiptamarkaðnum og var tekin saman þann 10. apríl.

Ástríðan mun fylgjast vel með 2. deild í sumar sem og 3. deildinni.

Spá Ástríðunnar fyrir 2. deild karla:
1. Njarðvík
2. ÍR
3. Völsungur
4. Víkingur Ólafsvík
5. Magni
6. Þróttur Reykjavík
7. Ægir
8. Reynir Sandgerði
9. KF
10. Haukar
11. Höttur/Huginn
12. KFA

Fyrsta umferð:
föstudagur 6. maí
19:15 Reynir S.-Haukar (BLUE-völlurinn)

laugardagur 7. maí
14:00 Víkingur Ó.-Völsungur (Ólafsvíkurvöllur)
14:00 Þróttur R.-Njarðvík (Þróttarvöllur)
14:00 ÍR-Höttur/Huginn (ÍR-völlur)
16:00 KFA-KF (Fjarðabyggðarhöllin)
17:00 Magni-Ægir (Dalvíkurvöllur)
Ástríðan - Spá fyrir 2. deild
Athugasemdir
banner
banner