Guðrún Jóna: Þurfum að spila á þessu sjálfstrausti
Auglýsing

Guðrún Jóna.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, þjálfari Þróttar var nokkuð sátt þrátt fyrir tap sinna stúlkna gegn Val í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Flestir spáðu öruggum sigri Vals en Þróttur stóð í þeim og fóru með leikinn í framlengingu.

„Já, ég er það, þetta var bara hörkuleikur og við spiluðum mjög vel í dag.\"
Guðrún var ósátt við atvik sem átti sér stað í leiknum og vildi meina að Þórdís María Aikman, markmaður Vals hefði átt að fá rautt spjald.
„Mér fannst markmaðurinn aldrei koma við boltann og hann hleypur manninn minn niður.\"
Guðrún var sátt við ýmislegt í leiknum í dag þrátt fyrir tap.
„Ég er mjög sátt við spilamennskuna, mjög sátt við vinnuframlagið, mjög sátt við baráttuna.\"
„Við þurfum bara að spila á þessu sjálfstrausti sem við spiluðum á í dag. Þetta er allt búið að vera á uppleið hjá okkur.\"