Fotbolti.net
05.06.16 - 21:52
Arnar Daði Arnarsson

Gústi: Spurning hvort það sé okkar tilvera að vera í toppbaráttu

Auglýsing
Gústi: Spurning hvort það sé okkar tilvera að vera í toppbaráttu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Það var mjög kærkomið á fá þessi þrjú stig. Á móti sprækum Víkingum. Þeir eru alltaf hættulegir og við vissum það,\"</i> sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis eftir 2-1 sigur á heimavelli gegn Víkingum í 7. umferð Pepsi-deildar karla.

Tvö mörk á skömmum tíma undir lok leiks skiluðu Fjölnismönnum öllum stigunum sem í boði voru en Víkingar minnkuðu muninn í uppbótartíma.
„Við stóðum vaktina vel og náðum að innbyrða þessi þrjú stig. Mér fannst þetta samt sem áður vera stöðubarátta og við fengum nokkur færi til að setja mark en við ákváðum að setja tvö þegar lítið var eftir. Þeir setti síðan eitt og það var því svolítil pressa og stress í lokin.\"

Eftir ágætlega fjörugan fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu færi þá minnkuðu gæðin sóknarlega hjá báðum liðum í seinni hálfleik. Það var ekki fyrr en undir lokin sem allt fór á flug sóknarlega.

„Hvorugt liðið vildi tapa. Við ákváðum að vera þéttir og halda fegnum hlut og halda núllinu. Síðan settum við í smá túrbó síðustu 10 mínúturnar og settum á þá. Þá sáum við að við erum sterkir og við erum á heimavelli og settum tvö frábær mörk.\"

„Við leyfðum þeim reyndar að komast inn í leikinn. Við eyddum miklu púðri til að skora og þeir komast aðeins inn í þetta og settu pressu á okkur í lokin.\"

Eftir sigurinn eru Fjölnir í 3.sæti deildarinnar með 13 stig, stigi á eftir FH og Víking Ó. sem eru jöfn á toppnum. Fjölnismenn þurfa að sýna meiri stöðugleika ætli þeir sér að halda sér nálægt toppnum.

„Ef þú ætlar að taka þátt í toppbaráttunni þá þarftu stöðugleika. Það er spurning hvort það sé okkar tilvera í Pepsi-deildinni að vera í toppbaráttunni. Við þurfum að svara því sjálfir með stöðugleika.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.