Fotbolti.net
05.06.17 - 21:18
Valur Páll Eiríksson

Helgi Sig: Hefðum getað unnið stærra

Auglýsing
Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis.

Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn Leikni R í kvöld. En var þetta einhvern tímann í hættu?

„Nei það var það í rauninni ekki. Við vorum ákveðnir að halda áfram góðu gengi og við vitum hvað við þurfum til þess; við þurfum að leggja okkur fram, eins og við höfum gert, hafa gaman af hlutunum og það gekk svo sannarlega eftir í dag. Auðvitað vissum við að við værum að mæta sterku liði Leiknis en við vorum tilbúnir í baráttuna og tilbúnir að vinna annan og þriðja boltann sem er svo mikilvægt í þessum leikjum og þegar við komumst yfir fannst mér meira og minna vera eitt lið á vellinum og við hefðum þess vegna getað unnið þetta stærra en mikið rosalega er ég sáttur að halda hreinu hérna í dag.\" sagði Helgi.

Ásgeir Börkur Ásgeirsson, fyrirliði Fylkis, fór meiddur af velli snemma leiks. Hafði það mikil áhrif?

„Nei, það hafði ekki mikil áhrif í dag en það hefur náttúrulega alltaf áhrif að missa fyrirliðann sinn útaf en það stigu aðrir menn upp sem er frábært og við erum ekki háðir einum leikmanni þó auðvitað sé Börkur mjög mikilvægur liðinu og alltaf vont að missa hann í meiðsli en strákarnir kláruðu þennan leik alveg eins professional og hægt var að hafa það og meira get ég ekki beðið um.\"
„Næsti leikur er bara á laugardaginn við Leikni Fáskrúðsfirði og það verður erfiður leikur eins og hver annar leikur. Maður er alltaf að segja sömu tugguna, maður nýtur þess í kvöld og fagnar og maður á að fagna vegna þess að það er búið að leggja hart að sér alla vikuna og í þessar 90 mínútur til þess að vinna þennan fótboltaleik og nú fögnum við því.\"

Meira kom fram í viðtalinu við Helga sem má sjá í heild sinni að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.