Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. júní 2022 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Versta afsökun sem ég hef heyrt"
Mynd: EPA

Sadio Mane hefur gefið það út að hann muni yfirgefa Liverpool í sumar.


Hann á enn eitt eftir af samningi sínum en talið er að Bayern Munchen hafi áhuga á þessum senegalska leikmanni.

Mane sagði að ástæðan fyrir því að hann ætli að yfirgefa Liverpool sé vegna þess að lang flestir Senegalar vilji að hann geri það. Jose Enrique fyrrum leikmaður Liverpool er ekki hrifinn af þessum rökum.

„Þetta er versta afsökun sem ég hef heyrt frá leikmanni sem vill yfirgefa félag. Hann er og verður goðsögn en Mane, þú vilt fara því þú færð betur borgað annars staðar og það er skiljanlegt en að setja afsökunina á senegölsku þjóðina...." Skrifaði Enrique á Instagram síðu sína.


Athugasemdir
banner
banner