Ejub: Það verða einhverjar breytingar í glugganum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík vann flottan sigur á Aftureldingu í kvöld í 10 umferð Inkasso-deildar karla. Eftir markaþurrð síðustu leiki var mjög kærkomið fyrir Víkinga að ná inn tveimur mörkum og sérstaklega að vinna leikinn.
"Tilfinningin er virkilega góð. Það er erfitt að spila leik þegar maður hefur ekki skorað í nokkrum leikjum í röð þannig það er mjög gott að ná þessum mörkum og vinna leikinn"
Elías dómari og aðstoðarmaður hans dæmdu mark af Víkingum í fyrri hálfleiknum í stöðunni 0-0 en það sem kom á óvart var hversu lengi Elías var að dæma rangstöðu.
"Ég ætla ekkert að segja hvort hann hafi verið rangstæður eða ekki þar sem ég sá þetta ekki vel frá mínu sjónarhorni en mér finnst ef hann var púra rangstæður afhverju í ósköpunum lyftir hann ekki flagginu strax."
Viðtalið má sjá í heild sinni í tækinu hér fyrir ofan