Miðjumaðurinn Thiago Alcantara er líklega á leið frá Bayern München í sumar.
Karl-Heinz Rummenigge, framkvæmdastjóri Bayern, segir að leikmaðurinn sé að sækjast eftir nýrri áskorun.
Karl-Heinz Rummenigge, framkvæmdastjóri Bayern, segir að leikmaðurinn sé að sækjast eftir nýrri áskorun.
Samningur þessa 29 ára spænska landsliðsmanns við Þýskalandsmeistarana rennur út sumarið 2021 og ekki er útlit fyrir að hann muni gera nýjan samning.
„Hann er fínn náungi, innan sem utan vallar. Við komum til móts við hann í öllu sem einu, en hann vill prófa eitthvað nýtt undir lok ferilsins," sagði Rummenigge við Bild.
Líklegt er að Thiago verði seldur í sumar þar sem Bayern vill ekki missa hann frítt.
Thiago hefur meðal annars verið orðaður við Liverpool.
Athugasemdir