Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
   fim 05. ágúst 2021 22:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Deano: Ef ekki, farðu þá bara að vinna í Bónus eða eitthvað
Lengjudeildin
Dean Martin, þjálfari Selfoss.
Dean Martin, þjálfari Selfoss.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er svekktur að vera ekki að ganga hér út með að minnsta kosti eitt stig," sagði Dean Martin, þjálfari Selfoss, eftir 2-1 tap gegn Gróttu í Lengjudeildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Grótta 2 -  1 Selfoss

„Við sköpuðum nokkur mjög góð færi í fyrri hálflleik en náum ekki að klára. Við fáum það í andlitið þegar þeir skora. Ég er mjög svekktur."

Selfoss tapaði 3-0 fyrir Þrótti í síðustu viku. Var hann sáttur með það hvernig liðið brást við þeim leik?

„Við gáfum Þrótti ekki leik í síðustu viku. Við fórum út í dag og sýndum hvaða karakter, vilja og vinnusemi við erum með. Það var áræðni og ástríða, allt til staðar í dag. Ég finn til með þeim að ganga héðan út og fá ekkert fyrir leikinn."

„Við lögðum upp með að vinna leikinn, mæta af krafti og sýna að við getum spilað fótbolta, og barist eins og ljón."

Selfoss er nálægt fallsvæðinu, aðeins tveimur stigum frá því. Þróttur, sem er í 11. sæti, á leik til góða á Selfoss.

„Þú getur alltaf bætt þig. Við vinnum stanslaust að því alla daga að bæta okkur. Þess vegna ertu í þessu. Ef ekki, farðu þá bara að vinna í Bónus eða eitthvað."

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp