Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. september 2020 21:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nokkuð um óvænt úrslit í enska deildabikarnum
Swansea og Cardiff féllu bæði úr leik.
Swansea og Cardiff féllu bæði úr leik.
Mynd: Getty Images
Enski deildabikarinn er byrjaður að rúlla. Engin úrvalsdeildarfélög taka þátt á þessu stigi keppninnar en félögin í Championship-deildinni eru byrjuð að taka þátt.

Fullt, fullt af leikjum var í dag og eins og venjan er í bikarkeppnum á Englandi þá voru óvænt úrslit.

Newport County úr D-deild lagði Swansea, Cambridge úr D-deild lagði Birmingham, Northampton úr C-deild vann Cardiff, Rochdale vann Huddersfield og QPR þurfti að lúta í lægra haldi gegn Plymouth.

Með því að smella hérna má sjá úrslitin úr leikjunum til þessa.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner