05.10.20 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Aouar fer ekki til Arsenal

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Houssem Aouar, miðjumaður Lyon, mun ekki ganga til liðs við Arsenal áður en félagaskiptaglugginn lokar í kvöld.
Hinn 22 ára gamli Aouar hefur verið orðaður við Arsenal í allt sumar.

Eftir að hafa skorað í leik gegn Marseille í gær tilkynnti Aouar að hann fari ekki fet.
„Ég vil halda áfram ævintýri mínu hjá félaginu sem hóf feril minn," sagði Aouar.
Lyon er í 14. sæti í frönsku úrvalsdeildinni eftir að hafa unnið einungis einn af fyrstu sex leikjum sínum. Aouar segist skulda félaginu að gera betur.