Fotbolti.net
05.10.26 - 11:20
Elvar Geir Magnússon

Sjáðu markið: Ungstirnið sem Man City hefur tryggt sér sló met með bandaríska landsliðinu

Cavan Sullivan hress og kátur eftir leik.

Cavan Sullivan hress og kátur eftir leik.

Canon

Mynd: X

Cavan Sullivan varð yngsti markaskorari í sögu bandaríska karlalandsliðsins, 17 ára og fimm daga gamall, þegar hann kom boltanum yfir markvörð Mexíkó í 3-0 sigri í vináttulandsleik í Arizona um helgina.

Hann sló met sem hafði aðeins staðið í fimm daga, sett með marki Mathis Albert gegn Síle síðasta miðvikudag.

Sullivan er búinn að semja við Manchester City og tekur samningurinn gildi á næsta tímabili eftir að félagið keypti hann frá Philadelphia Union.

„Þetta eru stundirnar sem maður dreymir um þegar maður er yngri. Ég hef lengi hugsað um þessa stund," sagði Sullvin eftir leikinn.
Vináttulandsleikur: Bandarísku strákarnir halda áfram að heilla
TENGT EFNI

Vináttulandsleikur: Bandarísku strákarnir halda áfram að heilla





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.