Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 05. nóvember 2019 19:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hákon Ingi og Páll Sindri til Kórdrengja (Staðfest)
Bræðurnir Hákon Ingi og Páll Sindri Einarssynir.
Bræðurnir Hákon Ingi og Páll Sindri Einarssynir.
Mynd: Kórdrengir
Kórdrengir spila í 2. deild næsta sumar og þeir eru að styrkja leikmannahóp sinn.

Í dag skrifuðu bræðurnir Hákon Ingi Einarson og Páll Sindri Einarson undir samning við Kórdrengi.

Þeir koma báðir til félagsins frá Vestra. Þeir hjálpuðu Vestra að komast upp úr 2. deild á liðnu sumri.

„Kórdrengir eru virkilega spenntir fyrir þessum nýju leikmönnum og eru þeir gríðarleg styrking fyrir liðið," segir í tilkynningu Kórdrengja og kemur það einnig fram í henni að félagið ætli að styrkja sig enn meira á næstu dögum.

Kórdrengir ætla sér beint upp í Inkasso-deildina.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner