Fotbolti.net
05.11.21 - 11:01
Elvar Geir Magnússon

Barca kaupir Xavi í stjórastólinn (Staðfest)

Xavi er að taka við Barcelona.

Xavi er að taka við Barcelona.

Canon

Mynd: EPA

Al Sadd hefur gefið það út að Barcelona hafi samþykkt að borga fimm milljónir evra í riftunarákvæði í samningi Xavi. Hann sé því kominn með grænt ljós á að taka við Börsungum.

Barcelona reyndi að sleppa við að borga svona mikið fyrir Xavi en það bar ekki árangur. Ofan á þetta þarf félagið að borga Ronald Koeman tólf milljónir evra í starfslokagreiðslur.
„Xavi er mikilvægur hluti af sögu Al Sadd og við óskum honum alls hins besta," segir í tilkynningu Al Sadd. Þar kemur fram að félagið og Barcelona hafi einnig samið um samstarf í framtíðinni.

Xavi tók við Al Sadd eftir að hafa spilað með liðinu í fjögur ár og gerði liðið að katörskum meisturum og bikarmeisturum.

Sem leikmaður vann hann fjölmarga titla með Börsungum. Hann varð átta sinnum Spánarmeistari og vann Meistaradeildina fjórum sinnum. Hann er einn besti miðjumaður í sögu félagsins.

Það er verk að vinna fyrir Xavi en Barcelona á í miklum fjárhagsörðugleikum. Liðið er í níunda sæti í La Liga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.