05.11.21 - 15:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fengu Bjarka til að rýna í Xavi - „Snýst um algjöra yfirburði"

Bjarki Már Ólafsson og Xavi.

Mynd: Mohammed Ali

Xavi er að taka við Barcelona.

Mynd: Getty Images

Xavi er að taka svipuð skref og Pep Guardiola, núverandi stjóri Manchester City.

Mynd: Getty Images

Bjarki Már Ólafsson og Xavi.

Mynd: Mohammed Ali
Barcelona er að ganga frá ráðningu á nýjum þjálfara; Xavi Hernadez er að taka við sem þjálfari liðsins. Hann er á leiðinni heim.
Sem leikmaður vann hann fjölmarga titla með Börsungum. Hann varð átta sinnum Spánarmeistari og vann Meistaradeildina fjórum sinnum. Hann er einn besti miðjumaður í sögu félagsins.
Fólk í Evrópu veit kannski ekki mikið um Xavi sem þjálfara, í ljósi þess að hann hefur bara þjálfað í Katar til þessa. Hann hefur stýrt Al Sadd frá 2019 og unnið fimm titla, þar á meðal úrvalsdeildina í Katar fyrr á þessu ári.
Til þess að komast að því hvernig Xavi er sem þjálfari, þá leitaði Sky Sports - einn stærsti fréttamiðill í heimi - til Íslendings sem starfar í fótboltageiranum í Katar. Bjarki Már Ólafsson er greinandi hjá Al Arabi og hefur nokkrum sinnum þurft að greina lið Xavi.
„Ég hef varið mörgum klukkutímum í að horfa á lið hans og þeirra leikstíl," segir Bjarki.
Bjarki segir að Al Sadd hafi að mestu snúist um einstaklingsgæði áður en Xavi tók við. Honum hafi tekist að búa til mikla liðsheild. „Hjá Al Sadd er hann með bestu leikmennina. En honum hefur tekist að búa til sterka liðsheild og fá leikmennina til að vinna mjög vel saman. Hann er fær um að ná því besta út úr hverjum einasta leikmanni og fá hvern og einn til að vinna fyrir liðið. Mér finnst þetta frábært við hann."
„Al Sadd hefur farið úr því að vera sterkt lið í það að vera fáránlega sterkt lið," segir Bjarki.
Þegar Xavi var leikmaður Barcelona, þá sneri leikstíll Börsunga rosalega mikið um að halda boltanum innan liðsins, en Bjarki segir að það að halda boltanum sé ekki bara það sem einkennir Al Sadd. „Þetta snýst ekki bara um að halda bolta fyrir þá. Þetta snýst um algjöra yfirburði í öllum skilningi þess orðs."
„Þeir fara inn í leikinn til að stjórna öllum þáttum hans. Þegar þeir eru ekki með boltann, þá pressa þeir af svo miklum ákafa. Þeir vilja alltaf vera með boltann og þeir vilja rífa andstæðinginn í sundur."
Bjarki segir að Xavi sætti sig ekki bara við 1-0 sigur, hann vilji rústa andstæðingnum.
Hann hefur bæði spilað 4-3-3 og 3-4-3 með Al Sadd og segist Bjarki mjög spenntur að sjá hvað hann gerir með Barcelona. Hann er að fara á mikið stærra svið og verður fróðlegt að sjá hvernig hann höndlar það. Það er auðvelt að líkja þessu við þegar Pep Guardiola tók við Barcelona á sínum tíma. Hann var þá fyrrum miðjumaður liðsins og hafði verið að þjálfa varaliðið. Undir stjórn Guardiola - með Xavi á miðjunni - þá vann Barcelona allt sem hægt var að vinn og spilaði glimrandi fótbolta.
Það er verk að vinna fyrir Xavi en Barcelona á í miklum fjárhagsörðugleikum út af dýrkeyptum mistökum á leikmannamarkaðnum í bland við kórónuveirufaraldurinn. Liðið er núna í níunda sæti í La Liga.
Hægt er að lesa grein Sky Sports með því að smella hérna.