Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 06. janúar 2020 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool fær liðsfélaga Patriks frá Brentford (Staðfest)
Mynd: TeamTalk / Google
Liverpool er búið að kaupa framherjann Joe Hardy frá varaliði Brentford, þar sem hann lék með markverðinum efnilega Patriki Gunnarssyni.

Hardy, 21 árs, var valinn besti leikmaður varaliðs Brentford á síðustu leiktíð og hefur skorað 40 mörk í 80 leikjum fyrir liðið.

Hardy er uppalinn hjá Manchester City en hefur ekki tekist að vinna sér inn sæti í aðalliði Brentford, sem leikur í Championship deildinni.

„Joe hefur verið hérna í nokkur ár og hefur verið meðal bestu manna B-liðsins. Núna tekur við ný áskorun fyrir hann þar sem hann getur haldið áfram að þróa hæfileika sína undir bestu mögulegu kringumstæðum," segir Neil MacFarlane, þjálfari varaliðs Brentford.


Athugasemdir
banner
banner