Milan 1 - 3 Juventus
0-1 Federico Chiesa ('18 )
1-1 Davide Calabria ('41 )
1-2 Federico Chiesa ('62 )
1-3 Weston McKennie ('76 )
0-1 Federico Chiesa ('18 )
1-1 Davide Calabria ('41 )
1-2 Federico Chiesa ('62 )
1-3 Weston McKennie ('76 )
Ítalíumeistarar Juventus sýndu sitt rétta andlit í lokaleik ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Meistararnir fóru í heimsókn til toppliðs AC Milan og þar skoraði Federico Chiesa eftir 18 mínútna leik. Staðan var hins vegar 1-1 í hálfleik þar sem bakvörðurinn Davide Calabria jafnaði metin fyrir Milan.
Chiesa var aftur á ferðinni fyrir Juventus eftir rúmlega klukkutíma leik og miðjumaðurinn West McKennie náði að fylgja því eftir með marki þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.
Milan hefur verið án Zlatan Ibrahimovic í síðustu leikjum og hann var ekki heldur með í kvöld; lokatölur 3-1 fyrir Juventus. Milan er áfram á toppnum með 37 stig, en útlitið er betra fyrir Juventus núna. Meistararnir eru með 30 stig og leik til góða á Milan.
Önnur úrslit:
Ítalía: Sigurganga Inter á enda - Andri spilaði ekki
Athugasemdir