Fotbolti.net
06.02.21 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sjáðu markið: Langþráð mark hjá Jóa Berg

Sjáðu markið: Langþráð mark hjá Jóa Berg
Canon

Mynd: Getty Images

Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson var að skora fyrir Burnley sem er núna að spila við Brighton í ensku úrvalsdeildinni.
Brighton leiddi 1-0 í hálfleik en íslenski landsliðsmaðurinn var að jafna fyrir Burnley.

Boltinn barst til Jóhanns í teignum og hann skoraði með góðu skoti. Robert Sanchez í marki Brighton kom engum vörnum við.

Jóhann Berg hefur verið mikið meiddur að undanförnu en hefur á nýju ári náð að spila sex leiki á þessu ári til þessa. Hann var í byrjunarliði í dag og þakkaði fyrir traustið með sínu fyrsta deildarmarki síðan 10. ágúst 2019.

Markið má sjá hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.