3. deild karla hófst um helgina þegar heil umferð fór fram. Einn af leikjum umferðarinnar var leikur Reynis S. og Sindra frá Hornafirði.
Heimamenn fóru með sigur úr bítum 3-1 en Reynir er nýliði í deildinni og spáð góðu gengi.
Reynismenn eru virkir á Facebook og sendu frá sér skemmtilega mynd í dag þar sem tekin var mynd af búningsklefa Sindra eftir leik. Þar segir til að mynda.

„Þegar starfsfólk okkar (sjálfboðaliðar) fór inn í gestaklefann að viðureign lokinni blasti þessi sjón við. Til algjörrar fyrirmyndar hjá Sindramönnum og öðrum liðum til eftirbreytni," segir á Facebook síðu Reynis.
Hægt er að sjá mynd af klefanum hér að neðan.
Athugasemdir