Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
   fös 06. maí 2022 20:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimir Guðjóns: Það minnti á gamla og góða tíma
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var góður fótboltaleikur," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, eftir 2-2 jafntefli gegn sínu gamla félagi, FH, í Bestu deildinni í kvöld.

„Það eru vonbrigði að missa góða stöðu niður í jafntefli, en ef við lítum yfir leikinn í heild sinni þá held ég að jafntefli séu sanngjörn úrslit."

Lestu um leikinn: FH 2 -  2 Valur

Valur er með tíu stig eftir fjóra leiki. Heimir er sáttur með það, hans menn á toppnum.

„Við erum sáttir með byrjunina. Við vissum að það mun taka okkur einhvern tíma að búa til nýtt lið. Það er mikið af nýjum andlitum og það tekur tíma að hrista þetta saman... í kvöld horfir maður á körfuna og á morgun fer maður að hugsa um ÍA."

Vindurinn hafði áhrif á leikinn í kvöld. „Ég var hérna í einhver 17-18 ár og ég man ekki eftir því að það hafi verið svona mikill vindur í neinum leik sem ég tók þátt. Það kom mér á óvart. Þegar boltinn fór upp í loft þá greip vindurinn hann. Það hefði verið skemmtilegra ef það hefði verið logn sem er yfirleitt hér."

„Við réðum illa við Matta Vill, hann var öflugur í þessum leik og það minnti á gamla og góða tíma."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner