Fotbolti.net
06.06.20 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hefur ekki trú á að titillinn endi í Dortmund

Aðalmennirnir á bak við tjöldin hjá Dortmund, Hans Joachim-Watzke og Michael Zorc.

Aðalmennirnir á bak við tjöldin hjá Dortmund, Hans Joachim-Watzke og Michael Zorc.

Canon

Mynd: Getty Images

Michael Zorc, yfirmaður knattspyrnumála hjá Borussia Dortmund, er ekki vongóður um að Dortmund geti náð Bayern München í toppbaráttunni í Þýskalandi.
Þegar fimm umferðir eru eftir í deildinni er Bayern með sjö stiga forskot á Dortmund.

Zorc er ekki mjög jákvæður, hann er eiginlega búinn að viðurkenna tap. „Frá okkar sjónarhorni er það ákveðið hvaða lið verður meistari," sagði Zorc við fjölmiðla í Þýskalandi.

„Við trúum því ekki að Bayern muni misstíga sig, þeir eru of góðir. Það verður að viðurkennast. Við erum sem stendur í öðru sæti og ætlum að reyna að halda okkur þar."

Bæði Bayern og Dortmund eru í eldlínunni í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Sjá einnig:
Þýskaland í dag - Verður forskot Bayern saxað?

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Köln8-39
14Paderborn8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.