Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
banner
   mán 06. júní 2022 22:11
Sverrir Örn Einarsson
Aron Elís: Búinn að sjá hann í netinu áður en ég skaut
Aron Elís Þrándason
Aron Elís Þrándason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var bara geggjað, fyrsta skipti sem ég hef spilað í alvöru leik hér á heimavelli sem var bara geggjað.“
Sagði Aron Elís Þrándarson leikmaður Íslands um tilfinninguna að koma inn á völlinn í alvöru leik en hann lék síðustu 20 mínútur leiksins er Ísland gerði 1-1 jafntefli gegn Albaníu í Laugardal í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  1 Albanía

Eins og áður segir kom Aron til leiks þegar um 20 mínútur voru eftir. Hvernig fannst honum takturinn í leiknum.

„Hann var bara fínn, mér fannst við vera betra liðið í seinni hálfleik og vorum klaufar síðasta korterið að nýta ekki þessar stöður sem við fengum þegar við sóttum hratt á þá.“

Aron fékk eitt ágætt marktækifæri í leiknum en brást bogalistinn og setti boltann hátt yfir markið. Hefði Aron sem var iðin við markaskorun fyrir Víkinga fyrir um áratug sett þetta á markið fyrir einhverjum árum?

„Ég var eiginlega búinn að sjá hann í netinu áður en ég skaut þannig að það var svekkjandi að ná ekki að setja hann.“

Aron sem færst hefur aftar á völlinn eftir því sem á ferilinn hefur liðið kom inn í leikinn aftarlega á miðju. Sér hann sjálfan sig sem hreina sexu í dag?

„Já eiginlega, ég get samt leyst áttuna og get leyst flest allar stöður á miðju en undanfarið hefur gengið mjög vel í sexunni og hef verið hugsaður í þessu verkefni sem sexa og þá er maður bara klár í það.“

Sagði Aron en allt viðtalið má sjá hér að ofan.


Slapp
banner