Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 16:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikur: Belgar fara heitir á HM
Mynd: EPA
Belgium 5 - 0 Tunisia
1-0 Leandro Trossard ('28 )
2-0 Charles De Ketelaere ('53 )
3-0 Kevin De Bruyne ('65 )
4-0 Dodi Lukebakio ('85 )
5-0 Nicolas Raskin ('87 )
Rautt spjald: Ismael Gharbi, Tunisia ('62)

Belgía og Túnis mættust í síðasta leik sínum fyrir HM sem er framundan í næstu viku. Leikurinn fór fram í Belgíu.

Jeremy Doku átti sendingu inn á teiginn eftir tæplega hálftíma leik og Leandro Trossard stýrði boltanum í netið úr markteignum. Charles De Ketelaere bætti öðru markinu við með skalla eftir fyrirgjöf frá Yuri Tielemans.

Vont versnaði fyrir Túnis þegar Ismael Gharbi fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt eftir rúmlega klukkutíma leik. Kevin de Bruyne bætti síðan þriðja marki Belga við með skoti fyrir utan teiginn.

Belgar gerðu svo endanlega út um leikinn með tveimur mörkum undir lokin. Belgía lagði Króatíu á dögunum og fara því í góðum gír á HM.

Belgía er með Egyptalandi, Íran og Nýja Sjálandi í G riðli á HM. Liðið hefur leik gegn Egyptum þann 15. júní. Túnis er með Svíþjóð, Japan og Hollandi í F-riðli og hefja leik gegn Svíþjóð einnig 15. júní.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner