Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 17:49
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeild kvenna: Fjögurra marka jafntefli á Húsavík
Kvenaboltinn
Völsungur gerði jafntefli við ÍA
Völsungur gerði jafntefli við ÍA
Mynd: Hrefna Morthens
Völsungur 2 - 2 ÍA
0-1 Alexa Maletis ('7 )
1-1 Auður Ósk Kristjánsdóttir ('9 )
2-1 Hildur Laila Hákonardóttir ('20 )
2-2 Selma Dögg Þorsteinsdóttir ('45 )

Völsungur og ÍA skildu jöfn, 2-2, í 5. umferð Lengjudeildar kvenna á Húsavík í dag.

Liðin voru jöfn að stigum með fimm stig fyrir þennan leik í dag. Skagakonur brutu ísinn á 7. mínútu með marki Alexu Maletis en Auður Ósk Kristjánsdóttir var ekki lengi að jafna metin fyrir Völsung.

Þegar um tuttugu mínútur voru liðnar kom Hildur Laila Hákonardóttir heimakonum yfir en Selma Dögg Þorsteinsdóttir jafnaði fyrir gestina þegar lítið var eftir af fyrri hálfleiknum.

Ekkert var skorað í þeim síðari og sættust liðin á að deila stigunum í þetta sinn.

ÍA er í 6. sæti með 5 stig, eins og Völsungur, en með betri markatölu.
Lengjudeild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 5 5 0 0 15 - 8 +7 15
2.    Grótta 5 4 0 1 16 - 7 +9 12
3.    KR 5 4 0 1 14 - 7 +7 12
4.    Keflavík 5 2 1 2 11 - 8 +3 7
5.    ÍA 6 2 1 3 12 - 10 +2 7
6.    Selfoss 5 2 1 2 9 - 8 +1 7
7.    Völsungur 6 2 1 3 10 - 10 0 7
8.    FHL 5 1 1 3 7 - 9 -2 4
9.    HK 5 1 1 3 7 - 13 -6 4
10.    Tindastóll 5 0 0 5 3 - 24 -21 0
Slapp
banner
banner