Christian Greko Jakobsen, leikmaður Þórs, var úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir að hafa sett höfuð sitt í höfuð Guðmundar Kristjánssonar í leik Þórs og Stjörnunnar um síðustu helgi.
Greko vildi fá vítaspyrnu og lét Guðmundur hann heyra það fyrir meintan leikaraskap - stóð yfir honum. Greko brást illa við og rak höfuð sitt í höfuð Guðmundar.
Greko vildi fá vítaspyrnu og lét Guðmundur hann heyra það fyrir meintan leikaraskap - stóð yfir honum. Greko brást illa við og rak höfuð sitt í höfuð Guðmundar.
Máni Pétursson, stjórnarmaður hjá KSÍ, gagnrýndi úrskurðinn í Besta Spjallinu hér á Fótbolti.net.
„Það er einn leikmaður sem tekur þarna skrítið dæmi, fær á sig tveggja leikja bann. Ég skil ekki af hverju hann fékk tveggja leikja bann, ég fæ örugglega símtal úr Laugardalnum þar sem ég er skammaður fyrir að setja út á þessa hluti," sagði Máni.
„Mér fannst þetta of þungur dómur en kjánaleg hegðun engu að síður."
Enn og aftur sannast það að þessi aganefnd gerir bara eitthvað og stóru liðin græða alltaf.
— Aron Elvar Finnsson (@AronElvar97) June 3, 2026




