Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 23:07
Brynjar Ingi Erluson
Tuchel sáttur: Við unnum, héldum hreinu og enginn meiddist
Thomas Tuchel
Thomas Tuchel
Mynd: EPA
Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, var ánægður með 1-0 sigurinn á Nýja-Sjálandi í kvöld.

Harry Kane skoraði eina mark Englendinga undir lok fyrri hálfleiks en Tuchel skipti öllu byrjunarliðinu af velli í hálfleik.

1-0 sigur á Nýja-Sjálandi þykja kannski ekkert sérstök úrslit en Tuchel var samt ánægður.

„Í fyrsta lagi er ég ánægður með að enginn hafi meiðst. Við höfum átt fjórar góðar æfingar og þurftum að dreifa mínútunum á alla í miklum hita og á erfiðum velli. Þetta er ekki auðvelt en við unnum og héldum hreinu. Við getum haldið áfram á sömu braut. Orkustigið er rétt en gæðin munu koma. Því betri andstæðinga sem við fáum því betri verðum við. Við reyndum að skora og skora,“ sagði Tuchel, sem var sérstaklega ánægður með ákefðina í síðari hálfleiknum.

„Ég er mun ánægðari með hana í seinni hálfleiknum. Það var meira hungur, gredda og þrá. Við skoruðum ekki í seinni hálfleiknum en samt fannst mér hann betri. Harry skoraði eina markið í fyrri hálfleiknum en þar fannst mér vanta aga. Við fórum úr stöðum og héldum okkur ekki við planið. Það hægði á leik okkar en, svona til að setja þetta í samhengi, þá vorum við síðast saman í nóvember. Það er frekar langur tími og þetta er fyrsti leikurinn eftir tímabilið,“ sagði hann ennfremur.

Hann var spurður hvort einhver leikmaður hefði heillað hann en Tuchel neitaði að tala um einstaklingsframmistöður.

„Ég var hrifinn af seinni hálfleiknum. Harry skoraði eina markið en þetta snýst ekki um að hrósa einstaklingum í sjónvarpinu.“

Hvernig er dagskráin næstu daga?

„Við munum venjast rakanum og sólinni á meðan við erum hér. Það jákvæðasta er að við höldum áfram að æfa með öllum hópnum því enginn er meiddur. Það er ekki yfir neinu að kvarta. Á morgun spilum við leik til að ná endurheimt og síðan höfum við tvo daga til að undirbúa okkur fyrir Kosta Ríka. Fullt af leikmönnum fá fleiri mínútur. Arsenal-mennirnir eru komnir til móts við hópinn, sem er gott því það gefur okkur orku og gæði, og í kjölfarið fáum við einn og hálfan dag í frí. Við förum síðan til Kansas og undirbúum okkur fyrir Króatíu,“ sagði Tuchel.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner