Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, segir að Lionel Messi muni ljúka ferli sínum hjá félaginu.
Messi verður samningslaus eftir eitt ár og hefur verið orðaður við brottför frá Barcelona.
Bartomeu segir hins vegar að Messi ætli að gera áframhaldandi samning við Börsunga.
Messi verður samningslaus eftir eitt ár og hefur verið orðaður við brottför frá Barcelona.
Bartomeu segir hins vegar að Messi ætli að gera áframhaldandi samning við Börsunga.
„Við erum að semja við leikmenn og Messi hefur sagt við okkur að hann vilji vera áfram," sagði Bartomeu.
„Við munum njóta þess að hafa hann miklu lengur."
Athugasemdir