Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. júlí 2022 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mead: Ég á ekki til orð sem geta lýst þessu
Mynd: EPA

Bethany Mead var hetja Englendinga í kvöld þar sem hún skoraði eina mark leiksins í opnunarleik Evrópumóts kvenna sem haldið er á Englandi.


Leikið var á Old Trafford þar sem rétt tæplega 70 þúsund áhorfendur voru mættir til að fylgjast með. Það er aðsóknarmet á kvennaleik á Englandi og á Evrópumóti.

„Ég á ekki til orð sem geta lýst hversu dásamleg þessi tilfinning er. Það er frábært að byrja mótið á sigurmarki og ég er í sjöunda himni," sagði Mead að leikslokum.

„Ég var nokkuð viss um að boltinn væri inni en efasemdirnar jukust því lengur sem það tók að dæma markið."

Enska landsliðið hefur náð ótrúlegum árangri undir stjórn Sarina Wiegman og var þetta fimmtándi leikurinn með hana við stjórnvölinn. England er búið að vinna 13 leiki og gera 2 jafntefli undir stjórn Wiegman og með markatöluna 85-3.

„Þetta er stórkostleg stund fyrir okkur alla. Hlustið bara á stemninguna á vellinum. Þetta er ótrúlegt," sagði Wiegman að leikslokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner