Fotbolti.net
06.07.24 - 17:02
Anton Freyr Jónsson

Viktor Jóns: Þegar maður kemst á bragðið þá eykst sjálfstraustið

Auglýsing
Elskar að spila á móti HK

Elskar að spila á móti HK

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA fékk HK í heimsókn á Írskum dögum á Akranesi í dag og vann liðið 8-0 sigur á HK og má segja að það hafi verið drauma byrjun á frábærum degi fyrir Skagamenn

„Drauma byrjun, þetta var alls ekki það sem við bjuggumst við, við bjuggumst við hörku leik og byrjaði svona smá slagsmál. Menn voru að láta finna fyrir hvorum öðrum en svo fannst mér við bara ganga á þá." sagði Viktor Jónsson sóknarmaður ÍA.

Lestu um leikinn: ÍA 8 - 0 HK

Leikurinn byrjaði með barning hjá báðum liðum og eftir fyrsta markið hjá ÍA var þetta aldrei spurning. 

„Nei og ég er alveg sammála þér þar.  Við vorum helvíti þéttir í dag, og syntum grunnvinnunni vel og við bara spiluðum okkar leik frá fyrstu mínútu og til nítugustu sama hver staðan var og það skóp sigurinn"

„Við náðum að halda uppteknum hætti í seinni hálfleik, það er oft þannig að þegar maður kemur inn með svona forskot í hálfleik að menn detti svolítið niður en við gerðum það alls ekki."

Viktor Jónsson skoraði fjögur mörk og hefur skorað sjö mörk gegn HK á tímabilinu og má segja að Viktor Jónsson elski að spila á móti HK.

„Ég bara elska að spila fótbolta og það einhverneigin svona þegar fyrsta dettur og annað dettur og ég held að það sé frekar tilviljun að þetta hafi verið á móti HK en bara þegar maður kemst á bragðið þá eykst sjálfstraustið og maður hættir að hugsa eins mikið og þá bara dettur eitt af öðru."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.