Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 06. ágúst 2022 16:05
Aksentije Milisic
Lengjudeildin: Þriðji sigur Þórs í röð kom gegn Vestra
Lengjudeildin
Bjarni skoraði mark Þórs í dag.
Bjarni skoraði mark Þórs í dag.
Mynd: Páll Jóhannesson

Þór 1 - 0 Vestri
1-0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('63)

Lestu nánar um leikinn hérna.


Einn leikur fór fram í Lengjudeild karla í dag en þar áttust við Þór og Vestri fyrir norðan.

Þórsarar höfðu fyrir leikinn í dag unnið tvo leiki í röð en liðið er búið að vera í fallbaráttu lengi vel það sem af er sumri.

Í dag kom hins vegar þriðji sigurinn í röð og er liðið skyndilega komið í áttunda sæti deildarinnar, fjórum stigum frá þriðja sætinu. Rosalega jafn pakki um miðja deild.

Bjarni Guðjón Brynjólfsson gerði eina mark leiksins fyrir Þór þegar rúmur klukkutími var liðinn.

„FYRSTA MARKIÐ!! Það líka laglega markið!!!
Vinnur boltann á vallarhelmingi Vestra, gerir virkilega vel í að vinna baráttuna við Nacho, keyrir upp að vítateig Vestra og á frábært skot sem fer í stöngina og inn!
Þórsarar leiða, gegn gangi leiksins,"
skrifaði Sæbjörn Þór um markið í beinni textalýsingu frá Þórsvellinum.

Vestri er í í sjöunda sæti deildarinnar með tveimur stigum meira heldur en Þór.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner