Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 06. ágúst 2022 23:09
Brynjar Ingi Erluson
Mertens og Torreira í flugi á leið til Istanbúl - Ganga til liðs við Galatasaray
Dries Mertens og Lucas Torreira sáttir í flugvélinni
Dries Mertens og Lucas Torreira sáttir í flugvélinni
Mynd: Galatasaray
Dries Mertens og Lucas Torreira eru að ganga í raðir Galatasaray í Tyrklandi en þetta staðfesti félagið í tilkynningu fyrr í kvöld.

Mertens er 35 ára gamall og kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Napol rann út fyrr í sumar.

Belgíski framherjinn spilaði fyrir Napoli í níu ár og er markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi.

Hann er nú á leið til Galatasaray í Tyrklandi félagið staðfesti samkomulag við leikmanninn fyrr í kvöld og er hann á leið í flugi til Istanbúl að ganga frá samningum.

Úrúgvæski miðjumaðurinn Lucas Torreira er með Mertens í flugvélinni en hann kemur til Galatasaray frá Arsenal. Enska félagið fær um 6 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Arsenal keypti Torreira frá Sampdoria fyrir 23 milljónir punda fyrir fjórum árum en hann eyddi síðasta tímabili á láni hjá ítalska félaginu Fiorentina. Úrúgvæski miðjumaðurinn er 26 ára gamall.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner