Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 06. ágúst 2022 23:48
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Konfekt-sending Messi og geggjuð bakfallsspyrna
Lionel Messi
Lionel Messi
Mynd: EPA
Lionel Messi og Neymar voru stjörnurnar í 5-0 sigri Paris Saint-Germain á Clermont Foot í fyrstu umferð frönsku deildarinnar í kvöld en mark brasilíska leikmannsins vakti athygli sem og annað mark Messi.

Pablo Sarabia fékk boltann vinstra megin við teiginn, kom með boltann á Messi sem vissi upp á hár hvar Neymar væri staddur.

Hann rétt lyfti boltanum og náði að setja fullkomna vigt á sendinguna sem rataði síðan á Neymar og var eftirleikurinn auðveldur. Messi gerði annað mark sitt og fimmta mark PSG seint í leiknum en það gerði hann með bakfallsspyrnu eftir sendingu frá landa sínum, Leandro Paredes.

Neymar og Messi náðu góðri tengingu í leiknum en gaman verður að fylgjast með þeim tveimur í fremstu víglínu hjá PSG í vetur. Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu stoðsendinguna hjá Messi
Bakfallsspyrnan hjá Messi




Athugasemdir
banner
banner
banner