Það fóru fram tveir leikir í 2. deild kvenna og setti veðrið heldur betur strik í reikninginn.
Fjarðab/Höttur/Leiknir fór með sigur af hólmi gegn Hamri í leik sem hófst í Hveragerði en endaði í Kórnum. Fyrstu 18 mínúturnar voru spilaðar á Grýluvelli en það var ekki hægt að klára leikinn þar vegna þess að völlurinn var á floti og óleikhæfur.
Því skelltu liðin sér inn í Kópavog þar sem leikurinn kláraðist með 4-0 sigri gestana. Fjarðab/Höttur/Leiknir er núna í þriðja sæti með 20 stig, eins og Grindavík sem er í öðru sæti. Grindavík á leik til góða. Hamar er í áttunda sæti með tíu stig.
Í hinum leik dagsins skildu Fram og Sindri jöfn, 2-2. Öll fjögur mörkin komu í fyrri hálfleik. Fram er á botninum með sjö stig og Sindri í sjöunda sæti með tíu stig.
Fram 2 - 2 Sindri
1-0 Salka Ármannsdóttir ('5)
1-1 Samira Suleman ('28)
1-2 Gabriela Maldonado ('37)
2-2 Halla Þórdís Svansdóttir ('45)
Hamar 0 - 4 Fjarðab/Höttur/Leiknir
Athugasemdir