Fotbolti.net
06.09.20 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Deeney: Hvað skoruðu Haller og Joelinton mörg?

Troy Deeney.

Troy Deeney.

Canon

Mynd: Getty Images

Troy Deeney, sóknarmaður Watford, er fullviss um að hann geti enn spilað í ensku úrvalsdeildinni.
Deeney skoraði tíu mörk í 27 leikjum í deildinni á síðustu leiktíð þegar Watford féll. Þrátt fyrir fall félagsins telur hann sig sjálfan geta spilað áfram í deild þeirra bestu.

„Ég lít klárlega á sjálfan mig sem úrvalsdeildarsóknarmann," sagði Deeney í samtali við The Sun.

„Ég fór í tveggja stafa tölu á síðustu leiktíð á öðrum fætinum. Núna er ég búinn að jafna mig á hnévandamálum og kominn aftur á tvær fætur."

Hversu mörg skoraði Sebastian Haller fyrir West Ham? Sex eða sjö. Hvað með Joelinton? Tvö. Þetta eru 40 milljón punda leikmenn og ég kostaði bara 300 þúsund pund. Tími minn er ekki búinn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.